Katrín Sigurjónsdóttir
Katrín Sigurjónsdóttir hefur gegnt starfi sveitarstjóra Norðurþings frá árinu 2022.
Starfsferill
[breyta]Katrín var ráðin sveitarstjóri Norðurþings árið 2022 og tók við af Kristjáni Þór Magnússyni.
Hún starfaði áður sem sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar á árunum 2018–2022. Katrín var einnig kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar á árunum 1994–2004 og aftur frá 2018 til 2022.
Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri Sölku-Fiskmiðlunar hf.
Menntun
[breyta]Katrín er Samvinnuskólagengin og stundaði nám í rekstrar- og viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri.
Ævi
[breyta]Katrín fæddist árið 1968 á Glitstöðum í Borgarfirði. Hún var búsett á Dalvík frá árinu 1988 til 2022, en flutti þá til Húsavíkur vegna starfa sinna hjá Norðurþingi.
Trúnaðarstörf
[breyta]Katrín hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum í gegnum árin, bæði innan stjórnsýslu og hjá íþróttafélögum í heimabyggð.
Fjölskylda
[breyta]Katrín er gift Hauki Snorrasyni frá Krossum á Árskógsströnd og eiga þau þrjú uppkomin börn.