Fara í innihald

Katrín Sigurjónsdóttir

Úr Húsa•wik
Útgáfa frá 7. apríl 2026 kl. 00:38 eftir Hnefill (spjall | framlög) (Bjó til síðu með „'''Katrín Sigurjónsdóttir''' hefur gegnt starfi sveitarstjóra Norðurþings frá árinu 2022. == Starfsferill == Katrín var ráðin sveitarstjóri Norðurþings árið 2022 og tók við af Kristjáni Þór Magnússyni. Hún starfaði áður sem sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar á árunum 2018–2022. Katrín var einnig kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar á árunum 1994–2004 og aftur frá 2018 til 2022...“)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Katrín Sigurjónsdóttir hefur gegnt starfi sveitarstjóra Norðurþings frá árinu 2022.

Starfsferill

[breyta]

Katrín var ráðin sveitarstjóri Norðurþings árið 2022 og tók við af Kristjáni Þór Magnússyni.

Hún starfaði áður sem sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar á árunum 2018–2022. Katrín var einnig kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar á árunum 1994–2004 og aftur frá 2018 til 2022.

Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri Sölku-Fiskmiðlunar hf.

Menntun

[breyta]

Katrín er Samvinnuskólagengin og stundaði nám í rekstrar- og viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri.

Ævi

[breyta]

Katrín fæddist árið 1968 á Glitstöðum í Borgarfirði. Hún var búsett á Dalvík frá árinu 1988 til 2022, en flutti þá til Húsavíkur vegna starfa sinna hjá Norðurþingi.

Trúnaðarstörf

[breyta]

Katrín hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum í gegnum árin, bæði innan stjórnsýslu og hjá íþróttafélögum í heimabyggð.

Fjölskylda

[breyta]

Katrín er gift Hauki Snorrasyni frá Krossum á Árskógsströnd og eiga þau þrjú uppkomin börn.

Flokkar

[breyta]