Katrín Sigurjónsdóttir
Katrín Sigurjónsdóttir hefur gegnt starfi sveitarstjóra Norðurþings frá árinu 2022.
Starfsferill
breytaKatrín var ráðin sveitarstjóri Norðurþings árið 2022 og tók við af Kristjáni Þór Magnússyni.
Hún starfaði áður sem sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar á árunum 2018–2022. Katrín var einnig kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar á árunum 1994–2004 og aftur frá 2018 til 2022.
Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri Sölku-Fiskmiðlunar hf.
Menntun
breytaKatrín er Samvinnuskólagengin og stundaði nám í rekstrar- og viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri.
Ævi
breytaKatrín fæddist árið 1968 á Glitstöðum í Borgarfirði. Hún var búsett á Dalvík frá árinu 1988 til 2022, en flutti þá til Húsavíkur vegna starfa sinna hjá Norðurþingi.
Trúnaðarstörf
breytaKatrín hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum í gegnum árin, bæði innan stjórnsýslu og hjá íþróttafélögum í heimabyggð.
Fjölskylda
breytaKatrín er gift Hauki Snorrasyni frá Krossum á Árskógsströnd og eiga þau þrjú uppkomin börn.