Forsíða
Húsa○wik
Wiki alfræðivefur um Húsavík, sögu bæjarins, fólkið, húsin, menninguna og samfélagið. Ritstjóri: Örlygur Hnefill Örlygsson.
Grein mánaðarinsbreytaÁ sjöunda áratugnum var félagið komið í verulega uppbyggingu með aukinni véltækni, stækkun húsnæðis og bættri vinnuhagræðingu. Rekstur þess gekk vel og á sumum árum var unnt að greiða sjómönnum uppbætur á fiskverð umfram lögbundið verð. Á síðari hluta 20. aldar varð FH eitt af tveimur stærstu atvinnuveldum Húsavíkur, ásamt Kaupfélagi Þingeyinga. Fyrirtækið var burðarás í sjávarútvegi bæjarins og hafði víðtæk áhrif á atvinnu, tekjur og samfélagsþróun. Um og eftir árið 1980 fór yfir 95% alls afla sem landað var á Húsavík í vinnslu hjá FH. Árið 1983 fór allur landaður afli í gegnum fyrirtækið. Það ár nam heildarafli til vinnslu um 11.300 tonnum, þar af stór hluti frá togurum, auk rækju, síldar og annarra tegunda. |
Greinar í vinnslubreytaSjá einnig: Greinar í vinnslu og óskaðar greinar Á þessari síðu er haldið utan um greinar sem vantar eða eru í vinnslu fyrir Húsawik. |
