Fara í innihald

Forsíða

Úr Húsa•wik

Húsa○wik
Wiki alfræðivefur um Húsavík, sögu bæjarins, fólkið, húsin, menninguna og samfélagið. Ritstjóri: Örlygur Hnefill Örlygsson.


Grein mánaðarins

Fiskiðjusamlag Húsavíkur

Fiskiðjusamlag Húsavíkur
Fiskiðjusamlag Húsavíkur var sjávarútvegsfyrirtæki sem starfaði á Húsavíkur á 20. öld og aðeins fram yfir aldamót. Félagið var stofnað árið 1947 og gegndi um áratugaskeið lykilhlutverki í atvinnulífi bæjarins. Það var selt árið 2003 og félaginu var slitið árið 2004.

Stofnun félagsins varsamstarfsverkefni Húsavíkurkaupstaðar, Kaupfélags Þingeyinga og sjómanna og útvegsmanna á Húsavík, með það að markmiði að bæta móttöku, vinnslu og nýtingu sjávarafla og styrkja þannig atvinnulíf og tekjugrunn bæjarins.

Á sjöunda áratugnum var félagið komið í verulega uppbyggingu með aukinni véltækni, stækkun húsnæðis og bættri vinnuhagræðingu. Rekstur þess gekk vel og á sumum árum var unnt að greiða sjómönnum uppbætur á fiskverð umfram lögbundið verð.

Á síðari hluta 20. aldar varð FH eitt af tveimur stærstu atvinnuveldum Húsavíkur, ásamt Kaupfélagi Þingeyinga. Fyrirtækið var burðarás í sjávarútvegi bæjarins og hafði víðtæk áhrif á atvinnu, tekjur og samfélagsþróun.

Um og eftir árið 1980 fór yfir 95% alls afla sem landað var á Húsavík í vinnslu hjá FH. Árið 1983 fór allur landaður afli í gegnum fyrirtækið. Það ár nam heildarafli til vinnslu um 11.300 tonnum, þar af stór hluti frá togurum, auk rækju, síldar og annarra tegunda.


Menning og listir

Saga Húsavíkur


Íþróttir og íþróttafólk

Félagasamtök


Greinar í vinnslu

Sjá einnig: Greinar í vinnslu og óskaðar greinar

Á þessari síðu er haldið utan um greinar sem vantar eða eru í vinnslu fyrir Húsawik.