Fara í innihald

Forsíða

Úr Húsa•wik
Útgáfa frá 7. apríl 2026 kl. 21:33 eftir Hnefill (spjall | framlög)

Húsa○wik
Wiki alfræðivefur um Húsavík, sögu bæjarins, fólkið, húsin, menninguna og samfélagið. Ritstjóri: Örlygur Hnefill Örlygsson.


Grein mánaðarins

Fiskiðjusamlag Húsavíkur

Fiskiðjusamlag Húsavíkur
Fiskiðjusamlag Húsavíkur var sjávarútvegsfyrirtæki sem starfaði á Húsavík á 20. öld og aðeins fram yfir aldamót. Félagið var stofnað árið 1947 og gegndi um áratugaskeið lykilhlutverki í atvinnulífi bæjarins. Það var selt árið 2003 og félaginu var slitið árið 2004. Stofnun félagsins var samstarfsverkefni Húsavíkurkaupstaðar, Kaupfélags Þingeyinga og sjómanna og útvegsmanna á Húsavík, með það að markmiði að bæta móttöku, vinnslu og nýtingu sjávarafla og styrkja þannig atvinnulíf og tekjugrunn bæjarins.

Á sjöunda áratugnum var félagið komið í verulega uppbyggingu með aukinni véltækni, stækkun húsnæðis og bættri vinnuhagræðingu. Rekstur þess gekk vel og á sumum árum var unnt að greiða sjómönnum uppbætur á fiskverð umfram lögbundið verð.

Á síðari hluta 20. aldar varð FH eitt af tveimur stærstu atvinnuveldum Húsavíkur, ásamt Kaupfélagi Þingeyinga. Fyrirtækið var burðarás í sjávarútvegi bæjarins og hafði víðtæk áhrif á atvinnu, tekjur og samfélagsþróun.

Um og eftir árið 1980 fór yfir 95% alls afla sem landað var á Húsavík í vinnslu hjá FH. Árið 1983 fór allur landaður afli í gegnum fyrirtækið. Það ár nam heildarafli til vinnslu um 11.300 tonnum, þar af stór hluti frá togurum, auk rækju, síldar og annarra tegunda.


Greinar í vinnslu

Sjá einnig: Greinar í vinnslu og óskaðar greinar

Á þessari síðu er haldið utan um greinar sem vantar eða eru í vinnslu fyrir Húsawik.